Er ekki alveg viss með gripin í viðlaginu en held þetta sé sirka svona
Endilega komið með tillögur ef eitthvað vantar uppá.
[Verse 1]
C#maj7
Að loknum lestri fréttanna
Bbm7
Litgreini sokka og sameina (Einn, tveir, áfram gakk)
C#maj7
Fylgist með fótabúnaði (Í hans náttúrulega umhverfi)
Bbm7
Og sé að þeim fjölgar, stöku sokkunum
C#maj7
Í gráman grannaskinnin falla eins og flís við rass
fljúga ansi oft á Útvarp Saga class
Bbm7
og fá sér af stút
C#maj7
Og þegar öllu þeirra bauki er á botninn hvolft
blasir við að ekki gerist alltof oft
Bbm7
að þau kíki eitthvert út
og ég spyr, ég spyr mig:
[Chorus]
F#maj7 Bmaj7
Úúú, er ekki mál að linni?
Bbm7 F#/B
Er ekki kominn tími til að skora gufuna á hólm?
[Verse 2]
Og sjá:
C#maj7
Vatteruð kona í kvartbuxum (hjarta, ertu fransbrauð?)
Bbm7
ég kikna í göngulimunum (fýsn, ertu hordauð?)
C#maj7
Ég sagði: „Kannski væri þjóðráð að við kíktum í
kaffibolla og mögulega kruðerí
Bbm7
og rifjuðum upp gengna slóð?“
C#maj7
Hún sagði: „Á laugardögum líta barnabörnin við,
á mánudaginn læt ég skipta um mjaðmarlið
Bbm7
en annars er ég bara góð.“
[Chorus]
F#maj7 Bmaj7
Úúú, er ekki mál að linni?
Bbm7 F#/B
Er ekki kominn tími til að skora gufuna á hólm?
F#/A# F Ebdim
[Outro]
C#maj7
(Að loknum lestri fréttanna)
Bbm7
(Litgreini sokka og sameina)
C#maj7 Ebm7
C#